Ekki verða streitunni að bráð
Viltu koma í veg fyrir að þú „brennir upp“ með tilheyrandi kostnaði fyrir þig, þína og samfélagið? Þú átt vini og óvini þegar kemur að því að takast á við álagið sem stundum getur fylgt daglegu lífi.
Grunnur jafnvægislistar nútímafólks er í raun ekki flókinn. Tímaskortur virðist vera helsta hindrun þess að við stundum þá jafnvægislist á hverjum degi. Við skynjum á stundum að okkur skorti tíma til að sinna því sem gerir okkur betur í stakk búin til þess að takast á við álag og því safnast streita upp í líkamanum sem gerir það að verkum að við eigum erfitt með að slaka á, njóta lífsins gæða og aukum líkur á margvíslegum heilsufarsvandamálum.
Samkvæmt rannsóknum er vinnan oftast uppspretta streitu en þættir eins og fjárhagsáhyggjur, samkeppni, krafa um aðlögun, samskiptavandi og áföll geta einnig haft áhrif á styrk þeirrar streitu sem við upplifum.
Þú átt þér bæði vini og óvini þegar kemur að því að takast á við álagið sem stundum getur fylgt daglegu lífi.
Vinir þínir
- Góður svefn. Góður svefn er upphafið að góðum degi og góðu jafnvægi. Ef þér gengur illa að sofna eða vaknar upp yfir nóttina og átt erfitt með að festa svefn að nýju til dæmis vegna þess að hugur þinn fer á fulla ferð, skaltu skrifa niður hugsanir þínar og sjá hvort þær verði ekki eftir á blaðinu eða beina huganum á einn stað með hugleiðslu. Ef slíkar sjálfshjálparaðferðir duga ekki skaltu leita læknis. Langvarandi svefnleysi eða óreglulegur svefn ógnar heilsu þinni og líðan og ber að taka alvarlega.
- Ástrík næring. Enginn þekkir líkama þinn og viðbrögð hans við því sem þú borðar betur en þú. Leggðu þig fram við að þekkja vel þær fæðutegundir sem líkaminn þinn elskar og haltu þig við þær. Forðastu í lengstu lög það sem fer honum illa. Ef þér líður til dæmis illa eftir að hafa borðað djúpsteiktan eða mjög feitan mat skaltu taka mark á þeim merkjum og minnka neyslu á slíkum mat eða hætta henni alveg. Á móti skaltu auka magn þeirrar næringar sem fyllir þig orku og vellíðan - í hófi samt. Flestu fullorðnu fólki sem vinnur t.d. skrifstofustörf en hreyfir sig reglulega nægja 1500-2000 kcal. á dag.
- Ögrandi hreyfing. Reyndu fyrir alla muni að gefa líkama þínum að minnsta kosti 20 mínútna hreyfingu á hverjum degi. Mannslíkaminn er ótrúlegt fyrirbæri og er byggður upp fyrir ótrúlega getu sé hann vel þjálfaður. Það er algengur misskilningur að það sé nauðsynlegt að taka langar æfingar þegar maður hreyfir sig. Það skiptir meira máli að hreyfa sig hvern dag og gera það hraustlega þannig að púlsinn fari upp og þú svitnir. Í slíku ástandi losar líkaminn um streituhormón (dópamín) sem auka vellíðan og gera mann betur í stakk búin til að takast á við ögrandi verkefni.
- Nærandi samskipti. Einlæg og krefjandi samtöl við annað fólk er ein mikilvægasta undirstaða góðra lífsgæða. Í því felst að tala um og takast jafnvel á um málefni sem skipta þig og viðmælandann máli. Margt af því sem við ræðum við annað fólk í dagsins önn skiptir í raun litlu máli en er jákvæð viðleitni okkar til þess að mynda tengsl. Forðastu þá sem taka frá þér orku og valda þér vanlíðan eða notaðu tækifærið og veltu fyrir þér af hverju þeir gera það.
Óvinirnir
Fyrir utan svefnleysi, óreglulega eða ófullnægjandi næringu, hreyfingar - og samskiptaleysi eru helstu óvinir þínir í baráttunni við álag og streitu eftirfarandi.
- Áfengi. Áfengi ræðst á heilann og gerir þig síður í stakk búinn til þess að taka góðar ákvarðanir og takast á við áskoranir. Rannsóknir hafa sýnt að hófleg neysla þess (að hámarki tvö vínglös) geti losað um streitu en ofneysla veikir taugakerfið, veldur kvíða og jafnvel þunglyndi.
- Einhæfni. Ef hver dagur er það þétt skipaður af endurteknum atburðum eins og vinnu, innkaupum og skutli upplifum við einhæfni sem gerir það að verkum að lífið hættir að koma okkur á óvart. Krafan um skilvirkni í nútímasamfélagi á sér rætur í vilja okkar til að ná árangri. Veltu því fyrir þér hvort dagskráin þín sé í raun nægjanlega fjölbreytt til að líf þitt sé innihaldsríkt.
- Kaffi. Margir eiga erfitt með að ímynda sér lífið án fyrsta kaffisopans að morgni dags. Flestar rannsóknir benda til þess að 2-4 kaffibollar á dag (gamla uppáhellingin) sé skaðlítið fyrir flesta en koffín í of miklu magni getur verið skaðlegt meltingarfærum og valdið taugaveiklun, pirringi og auknum hjartslætti.
- Sykur. Eins og áfengi og tóbak er sykur ávandabindandi og of mikil neysla sykurs hefur neikvæð áhrif á bæði líkama og sál. Sykur er ódýr orka og í raun eldsneytisrusl því að hann er án næringarefna og keyrir blóðsykurinn hratt upp við neyslu með tilheyrandi fráhvarfseinkennum þegar frá líður.
- Tóbak. Það er vísindalega sannað að tóbaksreykur og aukaefni í vindlingum eru krabbameinsvaldandi. Því til viðbótar er nikótín mjög ávandabindandi efni en það örvar heilastarfsemina með því að losa um dópamín sem eykur vellíðan. Þegar skortur verður á flæði nikótíns valda fráhvarfseinkennin kvíða og streitu.
- Óraunsæi. Að ætla að redda hverjum degi með því að hlaupa á milli staða er vísbending um að dagskrá þín sé of þétt skipuð. Ef hver dagur þýtur hjá án þess að þú náir að stoppa og njóta hans, eiga stefnumót við sjálfa(n) þig og aðra í ró og næði skaltu hugsa þinn gang og skoða hvort ekki sé þörf á að taka dagskrána til endurskoðunar.
Hin gullnu jafnvægisráð
- Farðu með tíma þinn eins og fjársjóð.
- Forgangsraðaðu í þína þágu, það er ekki sjálfhverfa heldur nauðsyn.
- Ekkert starf eða verkefni er svo mikilvægt að það megi kosta heilsu þína.
- Fáðu útrás fyrir hæfileika þína og hugsanir á hverjum degi.
- Ef þér gengur illa með svefn, temdu þér þá góðar svefnvenjur.
- Hafðu vini þína með þér en forðastu óvinina.
Það er einlæg trú Heilsufélagsins að góð yfirsýn leiði til heilnæms jafnvægis. Jafnvægið færir þér styrk til þess að nýta hæfileika þína og njóta lífsins til fulls.
Gangi þér vel!
Heimildir
http://www.medicalnewstoday.com/articles/271707.phphttp://www.health.harvard.edu/ http://www.healthline.com/health/alcohol/effects-on-body http://www.prevention.com/food/healthy-eating-tips/weird-effects-sugars-having-on-your-body https://www.psychologistworld.com/stress/stresstest.php https://www.psychologistworld.com/stress/ten-causes-of-stress-how-to-avoid-them.php https://quitday.org/smoking-effects/smoking-addiction-mental-vs-physical-addiction/