Er kulnun vandamál á þínum vinnustað?
Heilsufélagið býður nú nýja lausn sem hefur það að markmiði að minnka líkur á álagstengdum vandamálum meðal starfsmanna með því að fjarlægja ónauðsynlega álagsþætti og þjálfa álagsþol.
Mikil vakning og umræða hefur verið að undanförnu um áhrif mikils andlegs og líkamlegs álags sem nútímalíf getur haft í för með sér.
Líkja má brottfalli fólks af vinnumarkaði á Íslandi og víða í hinum vestræna heimi vegna álagstengdra vandamála - oft nefnt kulnun - við faraldur sem nauðsynlegt er að bregðast við enda er kostnaður vegna hans gríðarlegur bæði fyrir einstaklinga, vinnuveitendur og samfélög.
Heilsufélagið hefur á síðustu misserum unnið að greiningu á ástæðum þess að fólk verður óvinnufært um skemmri eða lengri tíma vegna álagstengdra vandamála og býður nú lausn sem hefur að markmiði að minnka líkur á því að slíkt gerist.
Lausnin felur í sér samstillt átak vinnuveitanda og starfsmanna í að greina álagstengda þætti bæði í starfi og einkalífi og vinna með markvissum hætti í því að fjarlægja ónauðsynlega álagsvalda og þjálfa álagsþol.
Hlutverk vinnuveitanda:
- Greining á starfsumhverfi. Ráðgjafi Heilsufélagsins framkvæmir í samstarfi við starfsfólk markvissa greiningu á starfsumhverfinu með það að markmiði að bera kennsl á álagsvalda.
- Umbætur á starfsumhverfi. Unnið er að endurskipulagningu vinnuumhverfisins undir leiðsögn ráðgjafa Heilsufélagsins með það að markmiði að fjarlægja ónauðsynlega álagsvalda og auka skilvirkni.
- Þjálfun starfsfólks. Starfsfólk fær þjálfun frá Heilsufélaginu sem hefur að markmiði að auka hæfni þess til að takast á við álag í starfi og auka álagsþol.
Hlutverk starfsmanns:
- Greining á álagsþáttum í einkalífi. Starfsmaður framkvæmir undir leiðsögn ráðgjafa Heilsufélagsins markvissa greiningu á einkalífi sínu með það að markmiði að bera kennsl á álagsþætti. Niðurstöður greiningarinnar eru persónuleg eign starfsmanns og eru ekki gerðar aðgengilegar vinnuveitanda nema starfsmaður kjósi að gera slíkt sjálfur.
- Umbætur í einkalífi. Starfsmaður fær í hendur verkfæri sem hjálpa honum að tileinka sér hegðunarmynstur í daglegu lífi sem vinna gegn neikvæðum áhrifum langvarandi álags.
- Álagsþjálfun. Starfsmaður lærir aðferðir sem hafa að markmiði að vinna markvisst með álagsþætti í einkalífi og minnka líkur á að þeir hafi neikvæð áhrif á lífsgæði til lengri tíma.
Stytting vinnutíma hefur verið einn af lykiláhersluþáttum launþegahreyfingarinnar í liðnum og yfirstandandi kjarasamningum. Heilsufélagið leggur til að álagsgreiningar líkt og hér er lýst séu framkvæmdar samhliða tilraunum til útfærslu á styttingu vinnutíma. Þannig má ná fram þríþættum árangri af verkefninu, þ.e. auka skilvirkni í starfi og einkalífi, fjarlægja ónauðsynlega álagsþætti og auka álagsþol. Allt ætti það að stuðla að því marki að minnka líkur á að álagstengd vandamál verði kostnaðarsöm á þínum vinnustað.
Pantaðu fund eða fáðu nánari upplýsingar um álagslausn Heilsufélagsins með því að senda tölvupóst á netfangið ragnheiduragnars@heilsufelagid.is, eða hringja í síma 892 7965.