Ertu árangursfíkill?
Trúir þú því að eina leiðin til þess að ná árangri og njóta hamningju í lífinu sé að leggja sig 150% fram í öllum þeim verkefnum sem þú tekur þér fyrir hendur? Dugnaður er vissulega kostur en ef hann er á kostnað þess að njóta augnabliksins getur hann haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Frá unga aldri er okkur talin trú um að eina leiðin til þess að ná árangri í lífinu sé að leggja sig fram við það sem við gerum. Við hljótum að verða hamingjusöm ef við skörum fram úr öðrum, helst með því að fórna miklu og þjást aðeins líka. Það er að minnsta kosti sú mynd sem er dregin upp af sönnum sigurvegurum.
Þessi trú okkar á árangurskenningar leiðir marga á slóð mikilla anna, kapphlaups við tímann og annað fólk með tilheyrandi spennu. Spennan leiðir suma út í vaxandi kvíðatilfinningu sem nauðsynlegt er að fá útrás fyrir ef hún á ekki að leiða til alvarlegra vandamála.
Við höfum líklega aldrei í sögu mannkyns verið í meiri hættu á að ganga of langt í að eltast við árangurskenningar og þróa með okkur árangursfíkn. Tæknin gerir okkur kleift að vera með starfið og einkalífið í lófanum allan sólarhringinn allan ársins hring. Við getum í gegnum snjallsímann okkar haldið mörgum boltum á lofti á öllum vígstöðum, í vinnunni, einkalífinu og nærsamfélaginu.
Að vera árangursfíkill, þ.e. að hafa stöðuga þörf fyrir verkefni, vera sífellt að hugsa um næsta viðfangsefni, næstu manneskju sem þarf að tala við og eiga þar af leiðandi í mesta basli með að njóta augnabliksins, hefur alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir starfið, einkalífið og síðast en ekki síst heilsuna.
Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem eiga í vandræðum með að lifa í núinu eru líklegri til þess að búa við verri andlega og líkamlega heilsu. Líkurnar á því að þeir upplifi kulnun eða örmögnun eru meiri og þeir eru líklegri til þess að upplifa minni lífshamingju.
Í starfi sýna þeir sem eiga í erfiðleikum með að lifa í núinu lakari frammistöðu, minni framleiðni, minni starfsánægju, aukna streitu og eiga frekar í vandræðum með að einbeita sér enda eru þeir sífellt að hugsa um næsta verkefni og athyglin er því aðeins að hluta í nútíðinni. Þeir eru líklegri til þess að upplifa átök og eru líklegri til þess að eiga í vandræðum í einkalífinu þar sem maki, börn og fjölskylda eru í sífelldri samkeppni við verkefnin.
Krafan um að vera virkur og gera helst margt í einu hefur sennilega aldrei verið meiri en nú. Samfélagsmiðlar gera þá kröfu að við séum sífellt að segja skemmtilegar fréttir af lífi okkar sem gerir það að verkum að í stað þess að njóta staðar og stundar, umhverfisins, náttúrunnar, göngutúrsins, samverunnar, erum við með athyglina á símtækinu og hvort þeir sem eru fjarstaddir kunni að meta það sem við erum að fást við, allt á kostnað augnabliksins.
Við upplifum hamingju í núinu vegna þess að við tökum allt inn sem er í kringum okkur og njótum alls þess sem í boði er í umhverfinu. Niðurstöður rannsókna við Harvardháskóla hafa sýnt að við upplifum mesta hamingju þegar við erum í núinu, jafnvel þó við séum að gera eitthvað sem okkur þykir ekki skemmtilegt. Það að sinna mörgum verkefnum í einu gerir kröfu um dreifða eða margskipta athygli sem kemur beinlínis í veg fyrir að við getum upplifað þá miklu orku og vellíðan sem felst í því að vera í verkefni sem fangar athygli okkar að fullu.
Góð ráð til þess að vera meira til staðar og auka þannig lífshamingu.
- Gefðu tækninni frí. Settu símann til hliðar og/eða slökktu á samfélagsmiðlum. Það neyðir þig til þess að einbeita þér að því sem er fyrir framan þig í stað þess að hugur þinn sé á þeysireið í gegnum augnablik vina þinna.
- Settu þér tímamörk á verkefni. Prófaðu 25-45 mínútna einbeitingarlotur. Haltu fullri einbeitingu á verkefninu, samtalinu eða samverunni án truflunar frá tækjum.
- Fáðu heilbrigða útrás fyrir uppsafnaða spennu. Ef mikill hraði og spenna einkenna líf þitt þarftu að finna leiðir til þess að fá heilbrigða útrás fyrir spennuna að öðrum kosti mun hún valda þér vanda bæði í starfi og einkalífi. Kröftug hreyfing, jóga, göngutúrar, lestur og áhugamál ótengd vinnu eru góðar leiðir til þess að losa um spennu eftir annasaman dag.
Gangi þér vel að taka lítil en mikilvæg skref í átt að innihaldsríkara lífi.