7 Heillaráð
Við gerum breytingar á lífi okkar með því að veita því sem við viljum ná fram athygli. Með því að framkvæma 7 atriði hvern dag stígur þú skref í átt að orku- og heillaríkri framtíð.
Langar þig að auka orku þína og minnka álag?
Við gerum breytingar á lífi okkar með því að veita því sem við viljum ná fram athygli.
Hér eru nokkur atriði sem gætu komið þér að gagni:
- Gefðu þér næði. Þú þarft ekki nema 2-3 mínútur á dag og notaðu þann tíma til þess að tengja við tilfinngar þínar og veita andlegri og líkamlegri líðan þinni athygli.
- Eigðu nærandi samveru við annað fólk. Í því getur falist að þú þurfir að minnka samveru við þá sem draga úr orku þinni en auka samskipti þar sem til verður aukinn kraftur og lífsgleði.
- Fáðu útrás fyrir áhugamál þín. Við getum verið svo upptekin af daglegum rútínuverkefnum að við gefum okkur ekki tíma til þess að sinna áhugamálum okkar. Vinnan telst ekki áhugamál því að hún skapar of mikla einhæfni til lengri tíma litið.
- Borðaðu fæðu sem líkami þinn elskar en ekki það sem hann þolir illa. Kúrar og skyndilausnir eru ekki leið að viðvarandir góðri næringu.
- Hreyfðu þig þannig að þú losir um stífleika og streitu. Hvort sem um er að ræða göngu, sund, hlaup, hjól, jóga, skíði, lyftingar eða dans, öll hreyfing við hæfi er til heilsubótar.
- Minnkaðu skjátímann eins og kostur er sérstaklega ef þú vinnur allan daginn við skjáinn. Að skauta í gegnum samfélagsmiðla til þess að skoða hvað hefur dregið á daga vina og fjölskyldu getur verið góð næring. Ef við hins vegar gleymum við okkur í skautinu festumst við í okkar eigin aðgerðarleysi.
- Sofðu reglulega og nægilega lengi til að vakna endurnærð(ur). Fullorðnu fólki nægja yfirleitt 7-8 tímar af svefni á sólarhring. Það jafnast ekkert á við að vakna fullur af orku og gleði yfir nýjum degi.