Innihaldsrík velgengni
Það er óhætt að dást að fólki sem hefur hugrekki til að láta drauma sína rætast. Sérstaklega ef sú vegferð er ekki alveg án áhættu og gerir kröfu um að farið sé út fyrir ramma hins hefðbundna daglega lífs.
Aðdáun okkar á fólki sem lætur drauma sína rætast er okkur eflaust að einhverju leyti eðlislæg. Við berum nánast ósjálfrátt virðingu fyrir þeim sem fara út fyrir ramma hins daglega lífs, ögra sér og taka jafnvel smáræðis áhættu í leiðinni. En hvernig mótast hugmyndir okkar um hið eftirsóknarverða líf og hvað stendur helst í vegi fyrir því að við lifum því lífi sem okkur dreymir um?
Hið fullkomna líf
Hún er djúpstæð sú þörf okkar að lifa við öryggi. Við kjósum gjarnan fjárhagslegt (t.d. fæði, klæði), tilfinningalegt (t.d. sambúð, hjónaband) og umhverfislegt (t.d. húsaskjól) öryggi. Öryggi á þessum sviðum gefur okkur svigrúm til að einbeita okkur að öðru en harðri lífsbaráttu. Það er mjög áhugavert að skoða hvernig við kjósum að verja tíma okkar í því svigrúmi sem myndast þegar grunnþörfunum er fullnægt.
Færa má sterk rök fyrir því að svipmyndir af lífi annarra hafi áhrif á hugmyndir okkar og drauma um hið eftirsóknarverða líf, að minnsta kosti framan af ævinni. Við sjáum ljósmyndir, kvikmyndir og í dag skot (snöpp) af dægurmálastjörnum sem virðast lifa hinu eftirsóknarverða lífi. Fullkomnir staðir, fallegt fólk og fallegir hlutir. Allt virðist fullkomið. Ef staldrað er við vitum við hins vegar að lífið er í raun aldrei án áskorana jafnvel þótt það virðist vera það á því augnabliki sem ljósmyndin eða skotið er tekið.
Láttu drauma þína rætast
En hvaða leiðir má fara í leit að því lífi sem hentar þér best? Hér fylgja nokkrar hugleiðingar um þær.
- Fylgdu hjarta þínu. Til þess að geta fylgt hjartanu þarftu að hlusta á hjarta þitt og huga. Hvað fær hjarta þitt til að slá hraðar og huga þinn til að gleyma stað og stund? Við gleymum stað og stund vegna þess að við höfum brennandi áhuga á því sem er að gerast. Gefðu þér því tíma til þess að skoða vel hvaða aðstæður, atburðir og fólk hafa slík áhrif á þig og púslaðu út frá þeirri rannsókn saman myndinni að þínu eftirsóknaverða lífi.
- Tjáðu þig. Tjáningarfrelsi eða réttur okkar til að hegða okkur og tjá okkur án hindrana innan siðlegra og löglegra ramma er mikilvægt. Að finnast maður ekki hafa rödd í tilverunni getur vakið upp efasemdir um tilverurétt okkar. Til þess að njóta frelsis þurfum við að vera laus undan áhyggjum og kannski fyrst og fremst áhyggjunum af því að mistakast. Við þurfum að trúa því að svo framarlega sem við fylgjum innsæi okkar og lærum af reynslunni muni okkur farnast vel.
- Ástundaðu nægjusemi. Þó að fjárhagslegu ríkidæmi geti fylgt frelsi getur því líka fylgt byrði. Að eiga miklar eignir útheimtir eljusemi og mikla vinnu. Sumum finnst sú vinna nærandi á meðan öðrum finnst meira frelsi í því falið að eiga lítið af veraldlegum eignum og nota fjármuni fremur í upplifun. Einhverjir kunna að upplifa sig fasta í neysluhjóli nútíma lífshátta og geta því ekki gert, eða skortir hugrekki til að gera, þær breytingar á lífi sínu sem þá dreymir um. Kannski vegna þess að þá þurfa þeir að gefa eftir einhver veraldleg gæði.
- Ræktaðu hugrekkið. Hugrekki er skilgreint sem hæfileikinn til þess að gera það sem maður hræðist. Að láta drauma sína rætast útheimtir yfirleitt ríflegan slatta af hugrekki. Þú ferð út fyrir þægindarammann og ýmist uppskerð eða mistekst. Mistök eru gjafir til að læra af og því er mikilvægt að gefast ekki upp þó að allt gangi ekki upp í fyrstu eða jafnvel í annarri umferð.
- Finndu til með öðrum. Samkennd eða hæfileikinn til þess skilja og deila tilfinningum með öðrum er eiginleiki sem gefur þér möguleika á að tengjast fólki með djúpum og nærandi hætti. Samkennd er mikilvæg í vinasamböndum og ákveðin forsenda trausts. Það getur þó verið stutt á milli þess að geta fundið til með öðrum og þess að taka ábyrgð á tilfinningum annarra. Samkennd ætti því að vera nærandi þáttur í lífi þínu en ekki hamlandi.
Gangi þér vel að móta og láta drauma þína rætast. Þannig upplifir þú helst innhaldsríka velgengni í lífinu.