Leitin að tilgangnum
Tilgangur einstaklinga og fyrirtækja er að finna sitt einlæga og oft á tíðum sérstæða hlutverk í tilverunni. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að tilgangurinn og hlutverkið geta tekið breytingum yfir tíma, sérstaklega ef umhverfið er síbreytilegt.
Grunnforsenda velgengni í fyrirtækjarekstri er að hafa tilganginn á hreinu. Hvers vegna er fyrirtækið til? Hverjum á það að þjóna og hvernig?
Segja má að þessi nálgun í að skýra tilvist fyrirtækja sér upprunin í trúarbrögðum og heimspeki enda tilvistarspurningar grundvallarspurningar beggja.
Eftir að hafa tekið þátt í að stjórna fyrirtækjum sem njóta velgengni í yfir áratug leiði ég nú hugann að því hvort að við sýnum tilgangi starfsfólks jafn mikin áhuga og tilgangi fyrirtækja?
Ef framtíðarsýn, stefna og gildi eiga að endurspegla tilgang fyrirtækja er þá ekki jafn mikilvægt að sömu þættir séu skýrir í hugum þeirra sem þar starfa?
Hvað gerist ef starfsmenn eru ósammála tilganginum, framtíðarsýninni, stefnunni eða gildunum og hversu margar frelsisgráður eru í boði þegar kemur að muni þar á milli fyrirtækisins og einstaklingana sem þar starfa?
Fyrirtæki geta án efa auðgast mikið á því að gefa starfsmönnum kost á að svara þessum spurningum og bera jafnvel saman bækur sínar og ræða. Það samtal getur leitt til þess að sterkari undirbygging verði í framtíðarsýn fyrirtækisins og að hún endurspeglist betur til viðskiptavina sem gera sífellt meiri kröfur um gagnsæi og jafnvægi haghafa.
Slík verkefni gætu ekki eingöngu verið ábatasöm heldur geta þau útskýrt hvers vegna til dæmis einstakar starfseiningar eða starfsmenn eru ekki að blómstra í sinni núverandi stöðu og hvaða breytingar eru nauðsynlegar til þess að tryggja að svo megi verða, öllum til hagsbóta.