Ánægjuleg áramótaheit
Um það bil 45% Bandaríkjamanna setja sér venjulega áramótaheit en 38% gera það alls ekki. Af þeim sem setja sér áramótaheit ná einungis 8% settu marki.
Um það bil 45% Bandaríkjamanna setja sér venjulega áramótaheit en 38% gera það alls ekki. Af þeim sem setja sér áramótaheit ná einungis 8% settu marki. Þeir sem opinbera áramótaheit sín eru 10 sinnum líklegri að ná þeim árangri sem þeir miða að, en þeir sem halda þeim leyndum.
Áramótaheit miða í flestum tilfellum að því að við gerum eitthvað nýtt eða gerum það sem við gerum nú þegar betur en áður. Í hópi þeirra Bandaríkjamanna sem setja sér yfirleitt áramótaheit velja 38% sér til dæmis markmið sem tengjast líkamsþyngd á meðan 34% setja sér fjármálatengd markmið. Það má velta því fyrir sér hvort að þau markmið verði fyrir valinu vegna þess hversu auðmælanleg þau eru eða hvort að líkamsþyngd og fjárhagsstaða sé það sem helst standi í vegi fyrir bættum lífsgæðum Bandaríkjamanna.
Heit um nýja upplifun
Til þess að fá innsýn í áramótaheit Íslendinga setjumst niður með tveggja barna móður og eiginkonu sem jafnframt er stjórnandi í farsælu fyrirtæki á Íslandi. Samhliða því að sinna sínum hefðbundnu hlutverkum af stakri prýði þá tekst hún á við margvísleg spennandi verkefni og hefur sett sér ögrandi áramótaheit um margra ára skeið.
Okkur leikur því forvitni á að vita hvert upphafið var.
“Eins og margar góðar hefðir hófst þetta sem samkvæmisleikur í áramótapartýi fyrir um 15 árum. Hver gestur setti sér markmið eitt eða fleiri og það var valkvætt hvort að markmiðunum var deilt til hópsins eða ekki. Ég og maðurinn minn ákváðum að deila einu markmiði og höfum gert það alla tíð síðan. Þau áramótaheit fela yfirleitt í sér að gera eitthvað alveg nýtt eins og að klífa fjöll eða taka þátt í íþróttaþrekraunum gjarnan erlendis. Við veljum okkur verkefni sem tengjast því sem við höfum mesta ánægju af sem í okkar tilfelli eru hreyfing og útivera."
Gleðin felst í ferðalaginu
Aðspurð segir hún að markmiðasetning sé ríkur þáttur í hennar lífi. Að vinna með markmið gefi henni þá tilfinningu að hún sé við stjórn í eigin lífi og að það sem hún geri skili árangri.
Að upplifa gleðina og ánægjuna sem felst í því að klára verkefni er mikilvægt, en ánægjan sem ég upplifi á ferðlaginu veitir mér ekki minni gleði.
Hún notar markmiðasetningu og endurgjöf mikið í sínu starfi en þar eru markmiðin í örari endurskoðun en í einkalífinu.
“Í vinnunni erum við sífellt að vinna með töluleg markmið og veita endurgjöf, stundum nokkrum sinnum á dag. Í einkalífinu velti ég markmiðum sjaldnar fyrir mér. Það gerir það að verkum að ég er ólíklegri til að ná öllum þeim markmiðum sem ég set mér í einkalífinu en líklegri til þess að ná vinnutengdum markmiðum.”
Hún lumar á góðum ráðum til þeirra sem langar að setja sér áramótaheit og upplifa þau verða að veruleika:
“Veldu þér áramótaheit sem kalla á verkefni sem þú nýtur og hefur gaman af. Ef þú til dæmis ætlar að vinna að því að bæta heilsu þína gerðu þér þá þann greiða að velja leiðir að því marki sem þér finnst skemmtilegar, nærandi og áhugaverðar. Alls ekki falla í þá gryfju að fara í ræktina til þess að bæta heilsu þína ef það er eitthvað sem þú hefur alls ekki gaman af. Finndu þér hreyfingu sem veitir þér ánægju eða gerðu breytingar á mataræðinu. Ef þér finnst gaman að elda er til dæmis snilldarráð að hella sér í matreiðslu sem felur í sér léttara mataræði en þú velur í dag.”
"Það mikilvægasta er að setja sér ánægjuleg áramótaheit. Þau eiga alls ekki að vera íþyngjandi. Það er til dæmis ekki mjög skynsamlegt að setja sér markmið um að komast á fjallstind ef maður nýtur þess ekki að ganga á fjöll, segir þessi kraftmikla og lífsglaða kona að lokum.
Heimildir
http://www.statisticbrain.com/new-years-resolution-statistics/