Hamstrar í hjólum
Að upplifa sig eins og hamstur í hjóli í daglegu lífi er líking sem verður oftar á vegi mínum nú orðið. Hefur það kannski eitthvað með það að vera á miðjum aldri að gera? En hvað er til ráða?
Líkingin "að vera eins og hamstur í hjóli" lýsir skilvirkni en tilgangsleysi. Þó að hreyfingin sé auðvitað nauðsynleg og góð, upplifir þú alltaf það sama.
Viðmælendur mínir sem notað hafa líkinguna eiga það sameiginlegt að vilja stíga út úr hjólinu og virðast deila þeirri upplifun að þeim gefist ekki tími til að;
- Ná yfirsýn og skoða stóru myndina,
- Nota sköpunargáfuna,
- Fara út fyrir rammann,
- Upplifa nýja hluti,
- Gefa sér tíma,
- Gefa sig og athygli sína óskipta til annarra.
Hvað er til ráða?
- Hætta að þrauka og þjóta.
- Hætta að hendast og hamast.
- Byrja að nærast og njóta.
- Byrja að þróast og þrífast.
Ef þú upplifir þig eins og hamstur í hjóli skaltu byrja strax að gera breytingar á lífi þínu sem miða að því að komast út úr hjólinu. Það er ekki eftir neinu að bíða því dagarnir eru ekki bara að þjóta hjá - lífið gerir það líka.
Gangi þér vel!