Heilsufélagið

Valmynd


Þarftu að segja sannleikann?

Segðu hann þá strax, segðu hann allan og segðu hann sjálf(ur) annars eru góður líkur á að þú sökkvir í hildýpi vantrausts og misskilnings.

Lanny nokkur Davis var einn af aðstoðarmönnum Bills Clintons fyrrum Bandaríkjaforseta þegar Monicu Lewinsky málið var í brennidepli árið 1998. Lanny sem er lögfræðingur, hafði þá nýlega hafið störf í Hvíta húsinu og eftir að hafa farið í gegnum þann mikla skýstrók sem málið var öllum hlutaðeigandi, tók hann saman lærdóm sem getur eflaust komið mörgum sem lenda í því að þurfa að takast á við krefjandi aðstæður, að gagni. Ekki síst í aðstæðum dagsins í dag þar sem svo virðist sem sannleikurinn eigi undir högg að sækja.

4 lögmál Lanny Davis um krísustjórnun.

  1. Náðu utan um allar staðreyndir og settu þær fram í einföldum skilaboðum. Þú þarft að skilja aðalatriði málsins svo að þú getir sett þau fram á einfölduðu máli og í einföldum skilaboðum.
  2. Vertu undanfari í sögunni. Ef þú hefur möguleika á að segja söguna sjálf(ur) þá skaltu gera það. Sá sem segir söguna hverju sinni þarf að njóta trausts og hann þarf að gera það af einlægni. Ekki gefast upp á því að koma sannleikanum á framfæri og gerðu það með öllum tiltækum ráðum.
  3. Taktu afstöðu með sannleikanum með því að nota lögin, fjölmiðla og pólitík. Oft eru flókin lagatæknileg mál kjarni málsins. Þeim atriðum þarf að koma á framfæri við almenning á skiljanlegu máli en nota má flóknari tæknileg hugtök þegar talað er við þá sem eru hluti af því umhverfi sem um ræðir.
  4. Ekki reyna að endurskapa þig á meðan á krísunni stendur. Rannsóknir hafa bent til þess að þeir sem reyna að endurskapa sig til dæmis með því að taka setja af stað samfélagsverkefni í kjölfar krísu séu skynjaðir sem hræsnarar og það hafi frekari neikvæð áhrif á ímyndina. 

Við þetta má svo bæta því umhverfið hefur tekið nokkrum breytingum frá aldamótum. 

  • Fylgstu vel með því sem fólk segir ekki síst á samfélagsmiðlum og hafðu gott nef fyrir því hvað telst fréttnæmt. Ekkert er eins vandræðalegt og fréttatilkynningar sem innihalda upplýsingar sem eiga ekkert erindi við aðra.


Aðalvalmynd

  • Einstaklingar
  • Fyrirtæki
  • Greinar
  • Verkefni
  • Um Heilsufélagið

Leita á vefnum


  • Heilsufélagið
  • Bæjarhrauni 2, 2.h.v.
  • 220, Hafnarfjörður
  • Sími: 892 7965

  • Heilsufélagið á Twitter
  • Heilsufélagið á Pinterest
  • Heilsufélagið á Facebook
  • Heilsufélagið á Instagram
  • Messenger
  • Heilsufelagid@heilsufelagid.is
  • Skrá mig á póstlista
Þetta vefsvæði byggir á Eplica