Er viðskiptavinurinn í raun vinur þinn?
Viltu vera viss um að þú sért að þróa starfsemi þína í takt við þarfir viðskiptavina þinna? Ef þú vilt geta svarað þeirri spurningu af einlægni og sannfæringu gæti verið gagnlegt að renna yfir meðfylgjandi efni.
Ef viðskiptavinurinn er og hefur alltaf verið sjáaldur augna þinna ertu eflaust á góðum stað í þínum rekstri. Mörg fyrirtæki og stofnanir hafa hins vegar misst sjónar af þörfum viðskiptavina sinna kannski vegna þess að þau verða of upptekin af eigin þörfum eða vegna þess að viðskiptavinurinn stakk af inn í breytt neyslumynstur eða lífshætti eða er á hraðri leið þangað.
Það eru eflaust margvíslegar ástæður fyrir því að slíkt gerist en meðfylgjandi atriði eru vísbendingar um að þú þurfir að taka til hendinni þegar kemur að því að þróa þjónustu þína og/eða vöru í takt við þarfir viðskiptavina þinna:
- Varan eða þjónustan sem þú býður í dag mætir ekki eins vel þörfum viðskiptavina þinna og áður.
- Vara eða þjónusta fyrirtækisins hefur valdið viðskiptavinum vonbrigðum og kvartanir gerast algengari.
- Trúnaður eða traust milli fyrirtækisins og viðskiptavina hefur boðið skipbrot til dæmis vegna þess að röngum upplýsingum var miðlað eða mistök urðu í framleiðslunni.
Vísbendingar um að þú sért á rangri leið.
Hvað bendir til þess að viðskiptavinurinn sé á förum eða að þú hafir misst tengslin við hann?
- Viðskiptavinum fækkar vegna þess að þú sérð minna af þeim sem áður sóttu reglulega í vöru þína og þjónustu.
- Hver viðskiptavinur kaupir minna þegar hann kemur.
- Það verður ekki endurnýjun á viðskiptavinum. Nýir viðskiptavinir á markaði sækja ekki í vöruna eða þjónustuna
- Viðskiptavinir eru hættir að bregðast við skilaboðum, tilboðum, auglýsingu eða sýna því minni áhuga.
Hvað er til ráða?
Til þess að efla samband þitt við viðskiptavini þína þarftu að þekkja þarfir þeirra betur en þeir þekkja þær sjálfir. Í því felst meðal annars að;
- þú sérð framtíðina fyrir. Þú áttar þig á þörfum viðskiptavinarins jafnvel áður en hann áttar sig á þeim sjálfur.
- þú einfaldar daglegt líf hans. Þú mætir þörfum hans með lausnum sem eru einfaldar og aðgengilegar og létta honum daglegt líf.
- þú bætir lífsgæði hans. Þú gerir honum kleift að njóta lífsins enn betur.
- þú hjálpar honum að ná árangri. Þú minnkar mögulega þann tíma sem hann þarf að verja í verkefni sem hann hefur ekki áhuga á og skapar þannig aukin tíma til þess að gera það sem honum finnst nærandi og skemmtilegt.
Viltu styrkja sambandið við þína viðskiptavini? Hafðu samband og saman finnum við leið sem færir þér og viðskiptavinum þínum aukna velgengni.