Virkjaðu orkuna til lífsgæða og árangurs
Viltu virkja orkuna þína til þess að bæta lífsgæði þín og árangur og koma um leið í veg fyrir að þú verðir streitu að bráð?
Á þessu tveggja tíma námskeiði lærir þú að nota dagbók sem hjálpar þér að forgangsraða í þína þágu, minnka líkur á að álag og stress taki völdin og hámarka líkur á að hver dagur verði þér og þínum til aukinnar hamingju og árangurs. Hverjum þátttakanda er gefin kostur á 30 mínútna einkasamtalið í kjölfar námskeiðsins.
Aðferðin sem þú lærir með því að nota bókina er ofureinföld en mjög árangursrík.
- Að virkja og styrkja grunnstoðirnar. Þú veitir grunnstoðunum hreyfingu, næringu, svefni og samskiptum aukna athygli. Þannig virkjar þú þær og styrkir og gerir þig betur í stakk búin að njóta lífsins, takast á við ákoranir, upplifa hamingju og árangur.
- Að rækta samband þitt við sjálfa(n) þig. Þú gefur þér tíma til að skrifa niður hugleiðingar þínar um lífið og tilveruna og styrkja þannig tengslin við langanir þínar, þrár og tilfinningar.
- Að setja í forgang það sem þér finnst nærandi og skemmtilegt. Þú gefur þér tíma til að skrifa niður það sem þig langar mest að gera og færa þannig áherslurnar frá því sem þú þarft að gera yfir á það sem þig langar mest að gera hvern dag.
- Að takmarka verkefni sem eru nauðsynleg en ekki nærandi. Þú skrifar niður það sem þú verður að gera en takmarkar þau verkefni þannig að þau séu ekki of mörg og gangi ekki um of á orku þína.
- Að forgangsraða í þágu lífsgæða og hamingju. Þú forgangsraðar verkefnum með það að markmiði að hámarka nærandi verkefni en lágmarka þau sem eru það ekki.
- Að virkja góðmennsku og þakklæti. Þú lærir að virkja jákvæða mannlega eiginleika þér og öðrum til aukinna lífsgæða, hamingju og árangurs.
Hvern dag sem þú notar bókina gerir þú meira af því sem þér finnst skemmtilegt og nærandi en minna af því sem tekur frá þér orku og kemur þér úr jafnvægi.
Á námskeiðinu er jafnframt leitast við að svara spurningum eins og:
- Standast algengar árangurskenningar vestrænna samfélaga nútímans, skoðun?
- Þekkjum við það sem veitir okkur hamingju og ræktum við það í daglegu lífi?
- Hvað ógnar helst möguleikum okkar á að upplifa hamingju og ná árangri?
- Hvernig virkjum við drifkraftinn án þess að lenda á yfirsnúningi?
- Hvernig náum við betri árangri með því að hvíla hugann og leika okkur meira?
- Hvernig verðum við betri vinur/vinkona okkar sjálfra og hvaða áhrif getur bætt samband við sjálfa(n) þig haft á framtíð þína?
Ragnheiður Agnarsdóttir stofnandi Heilsufélagsins er leiðbeinandi á námskeiðinu. Hún er árangursfíkill í bata og hefur brennandi áhuga á gullinni jafnvægislist árangurs, lífsgæða, heilsu og hamingju. Hún hefur verið framkvæmdastjóri í tryggingafélagi og stjórnendaráðgjafi og er menntuð í mannauðsstjórnun og sálfræði. Á 18 ára starfsferli hefur hún haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra um leiðtoga, stjórnun, teymisvinnu, breytingastjórnun, þjónustu markaðs- og ímyndarmál.
Þátttakendur hafa gefið námskeiðinu 9,5 í einkunn fyrir gagnsemi og í námskeiðsmati kom meðal annars eftirfarandi fram:
Mjög skýr og góð framsetning á efni og þægilegt að hlusta á fyrirlesara. Bókin mjög sniðug og gerir verkefnið enn áþreifanlegra og meira spennandi. Mjög flott að bjóða og hvetja gesti til að hafa samband eftir námskeiðið. Í heild virkilega flott námskeið.
- Verð fyrir námskeið, bók og 30 mín. einkasamtal kr. 18.900.
- Verð fyrir námskeið og einkasamtal (ef þú átt bókina) kr. 16.000.
- Verð fyrir námskeið og bók (án einkasamtals) kr. 11.000.
- Verð fyrir námskeið (ef þú átt bók) kr. 9.000.
Skráning fer fram á vefnum (hér fyrir neðan) en einnig er hægt að skrá þátttöku með því að senda tölvupóst á heilsufelagid@heilsufelagid.is og greiða fyrir námskeiðið á staðnum.
Fyrirspurnir vegna námskeiða fyrir starfsmannahópa eða félagsmenn stéttarfélaga má senda á heilsufelagid@heilsufelagid.is.